Ađalvalmynd

Frekna

Könnun

Hvađ finnst ţér um ástina?

Klukkan

Men frú StellaGilitrutt

er þetta partur af programmet?

Allt of mikið í gangi núna - er hálf ringluð bara - en það lagast.

Lokasýning á morgun og þá tekur nýtt prógramm við, en þó aðeins rólegra og svo verða bara komnir páskar.

Englaprinsinn minn varð 13 ára um daginn - tók þessum tímamótum með stóískri ró að venju á meðan móðirin fékk nett nostalgíuköst, skoðaði smábarnamyndir og trúði þessu bara ekki.

Enn snjóar og allt það - ég get sagt núna að ég hafi heimsótt kínverska sendiráðið - svakalega fékk ég góðan mat þar. Endaði svo daginn á últra flottum tónleikum með hinum eina sanna Þursaflokki.....úff þeir voru flottir - sat þarna ein í miðri stúku og sönglaði ofurlágt með og trommaði með. Ég sé ekki eftir þessari kvöldstund - enda alin upp við þessa tónlist og að auki voru fyrstu tónleikarnir sem ég fór á á minni ævi einmitt með þeim þursum í Selfossbíó, ég var 6 ára og sat á fremsta bekk, móðir mín hefur tjáð mér að hún hafi tekið fyrir eyrun á mér á meðan Brúðkaupsvísur voru sungnar og að söngvarinn hafi hætt við að segja dónalegan brandara þegar hann sá krílið á fremsta bekk.

Hér eru upptaka af Þursum sem ég fann á netinu - hún er af lokalaginu sem ég hélt að myndi aldrei koma og öskraði mikið með.

Hitt lagið er með Radiohead - uppáhaldslagið mitt núna er þetta - ferlega er nýja platan góð - rúllar hér á heimilinu fram og tilbaka.

Hafið það gott þursarnir mínir - nútíminn er víst trunta - en lífið er gott.

LífiđGilitrutt

heldur áfram að koma mér á óvart. Ennþá brjálað að gera og sér ekki högg á vatni- fer að halda að ég þrífist á þessu stússi öllu saman. Ætli það ekki bara.

Núh þakka velfarnaðaróskir - frumsýning gekk vel og skíturinn fór ekki í viftuna eins og leikstjórinn okkar segir- en var nógu nærri til að leikhúsgestir orguðu af hlátri yfir misskilning á misskilning ofan og við erum enn að sýna......allir að drífa sig - plöggi, plöggi, plögg - sýnt á fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum í litla leikhúsinu við Sigtún - allar sýningar byrja kl. 20.30 - þið getið pantað miða hjá yfirmiðaseljunni Hunangsbýflugu í síma 4822787 eða á leikfelagselfoss@gmail.com.

núh það virðist ætla að verða mikill drífandi í árinu - nú er mín að uppgötva allt um Kína - og það er mjög mikið að uppgötva - ætli ég verði ekki bara að drífa mig þangað - allt útlit fyrir að svo verði síðar á árinu.

svo er það þessi snjór allur - hann er notalegur - þyrfti bara að ákveða hvort hann ætli að fara eða vera - hláka í dag og frost á morgun- aftur og aftur - dáldið ruglandi.

lög dagsins eru annars vegar hið ljúfa Killing the blues með Alison Krauss og Robert Plant af plötunni Raising Sand, en platan sú arna fer varla úr spilaranum á kvöldin - mjög ljúft í myrkrinu.

Hins vegar er hið frábæra sturtuuppvöskunarlag Allt fyrir ástina með Páli Óskari - ekta dillibossadiskur - auðvelt að taka til við þessa tónlist - sving sving - ding ding - og allit að finna diskóið sem býr innra með hverjum manni - það er mín trú.

Veriði nú stillt og prúð innan skekkjumarka og étið eins og þið getið - af súru slátri eða harðfiski.

Frumsýning...Gilitrutt

á morgun - úff hvað ég er mikið spennt- með fiðring í maganum. Barbara Smtih birtist á ný!
Endilega kíkið ef þið viljið í Litla leikhúsið við Sigtún.


Lag dagsins er Strangers in the Night með Frank Sinatra af því að það er flott og það er notað í sýningunni.

Árin og hárinGilitrutt

Jáh - þá er komið að því - árið að klárast- set hérna inn nokkra hápunkta frá árinu:

-Ég vann rosalega mikið og var það metið að verðleikum, ég er ánægð með það og líkar afar vel á báðum vígstöðvum, sé það ekki breytast í bráð.
- árið var gott hjá gullprinsunum mínum og keppast þeir við að afreka allskonar hluti sem ég er afskaplega stolt af.
-ég fór á marga frábæra tónleika á árinu - algjör veisla - ég sá Björk - Goran Bregovic- Chris Cornell- Noruh Jones og að sjálfsögðu Ljótu Hálfvitana og Hraun
- ég fór á margar góðar leiksýningar - þar ber hæst Mr. Skallagrímsson
- Hnerrinn var frumsýndur og ég fór í frábæra leikferð til Litháen
-ég fór með mömmu til London - mjög gaman hjá okkur
- ég fór í Leiklistarskóla BÍL í fjórða sinn- frábært eins og venjulega og bullað eins og enginn væri morgundagurinn
-ég söng alveg fullt, í sturtu og víðar, en sérstaklega þó í eldhúsinu mínu góða
-hjartað mitt sló örar og ég fékk fiðrildi í magann
- ég eignaðist nýja vini og endurnýjaði kynni við eldri vini
-ég lá í hengirúmi og var löt
- las margar góðar bækur
- dansaði í gufubaði
-át rosalega mikið af humri og súkkulaði
- ég var umvafin fólki sem mér þykir vænt um og fólki sem ég elska


þannig að þið sjáið að árið hefur verið frekar gott

ég er heppin í lífinu mínu

Lag ársins - úff erfitt val
ein snilldarleg útgáfa af jólalaginu 12 days of Christmas - ég skil ekki hvernig hún fer að því að syngja þetta.
og svo Björk of course - gott ár hjá henni - set inn frábæra útgáfu með henni og Hector Zazou þar sem hún syngur Vísur Vatnsenda Rósu - njótið - mjög fallegt inn í nýja árið - megi það reynast ykkur öllum gott.

Jólin smjólin!Gilitrutt

Jæja verð nú að setja eina hugleiðingu hér inn fyrir jólin. Sit hér á Þorláksmessukveldi og allt orðið klárt, tær upp í loft, kveikt á kertum og Ella Fitz að syngja eitthvað fallegt jólalag fyrir mig.

Ég er komin í jólaskap- búin að græja jólakveðjur og pakka til allra sem ég elska og þykir vænt um í þessu lífi - held ég allaveganna. Fór til hans afa míns áðan og þá geta jólin komið - settist við borðið þar sem ég var vön að borða jólamatinn þegar ég var lítil og horfði á allt gamla jólaskrautið frá ömmu.

Þetta er falleg hátíð og ber með sér góð skilaboð:

elskum hvort annað- gefum af okkur og horfum á ljósið - það yljar inn að hjarta.

Gleðileg jól - elskiði friðinn- strjúkiði kviðinn og verið góð við hvert annað.

Lag dagsins er að sjálfsögðu jólalag með Ellu Fitzgerald.

gott er ađ gírast og gleđin viđ völdGilitrutt

allt gott - allt gott - mikið að gera - æfingar á fullu - önninni að ljúka - og tíminn flýgur áfram

lítið títt - en jú ég fór á forsýningu á Konan áður í þjóðleikhúsinu - leist vel á - vel skrifað leikrit - gott kast - fannst aðalkarlleikarinn reyndar vera veikasti hlekkurinn - en kannski lagast það eftir síðustu æfingavikuna - en vel þess virði að sjá - skemmtileg leikmynd og ég var spennt allan tímann yfir hvað myndi gerast næst þar sem höfundurinn hoppar sí og æ fram og aftur í tíma með persónurnar og maður veit ekkert hvað gerist næst sem sagt - skiljiði þetta?

æfingar ganga vel - urðum frá að hverfa á fimmtudaginn vegna hláturskrampa - veit á gott - það er að segja ef að áhorfendur koma til með að hlæja jafn mikið og við erum búin að gera á æfingum.

Já og fór í skemmtilegt fertugsammælispartý hjá Ljúbu undir jökli - afmælið var reyndar ekki undir jökli, en hljómsveitin Hraun kom við sögur - þeir eru svooooo góðir og glaðir líka.

núh - ég segi ekki meir í bili

lag dagins er alls alls alls ekki jólalag - enda er bannað að spila jólalög fyrr en 1. des.
það er lagið Venus As a Boy með Björkinni góðu - svo flott vídjó og elskulega erótískur texti. Svo getiði hlustað á aðra útgáfu af sama lagi hér
en þar er Corinne Bailey Rae að syngja - fallegt líka og svona öðruvísi - hún er með fallega rödd, svona brosandi rödd einhvernveginn.

Verið mjúk og góð og semjiði ljóð

farir eru sléttarGilitrutt

þær eru það - finnst bara fyndið að segja þetta af því að venjulega segir fólk farir sínar ekki sléttar.- en ég er slétt - með slétt hár og sléttrugluð að venju.

Mér tókst hið ómögulega í morgun, eitthvað sem ég hélt að myndi aldrei gerast, ég mætti klukkustund of snemma í vinnuna án þess að fatta það, stóð eins og bjáni í vinnunni og skyldi ekkert í því hvar allir væru, tók mig langan tíma að komast út úr því ástandi, enda hef ég löngum verið þekkt fyrir að vera með lángan fattara.

og allt að gerast - allt á fullu við undirbúning á nýju verki - það verður rosalegt - hurðaskellir og hlaup og ég þarf að rifja upp "hvaðíósköpunumeraðgerastégskilekkineittíneinu" svipinn minn - suddastuð.

Veriði góð!


Lag dagsins er svona - mér er hlýtt-úti er kalt - ég er í ullarsokkum og líður vel lag - með Emilíönu Torrini.

svona erGilitrutt

húmorsstigið hjá mér í dag...................



lag dagsins er ekta blús með Loftskipinu - You Shook Me - smá hump og rasp svona inn í helgina


elskið friðinn - stjrúkið kviðinn og munið að þið eruð falleg

Chekov and VodkaGilitrutt

Nei ég ætla ekki að tala um ferðina góðu - hún var sko frábær og margt sekmmtilegt sem gerðist - ótal myndir sem renna í gegnum hugann bara um leið og ég segi Chekov og Vodka að ekki sé minnst á helv. gúrkuna- en ég var að enda við að skrifa ferðasögu sem birt verður í Glugganum í næstu viku með myndum og alles - þannig að ég get ekki skrifað meir

er kát og dáldið kalt á nefinu og tánum - en það fylgir haustinu og er bara gott- ennþá hlýlegra að kveikja á kertum í eldhúsinu eins og ég er búin að gera núna - láta Miles Davis spila fyrir sig og bara vera til

nú svo er það bara næsta uppfærsla - áfram með smjörið - ekkert rugl!

í millitíðinni - sem er um það bil 3 vikur- ætla ég að lifa reglusömu lífi og fara snemma að sofa og vera skynsöm- hlýt að halda það út

lag dagsins er Daughters, live útgáfa með John Mayer - Stampurinn kaupti diskinn fyrir mig í Vestulöndum fjær og er hann nú límdur fastur í spilaranum mínum - ég þarf að komast á tónleika með kappanum- asssssssssssssssssssssskoti gott

Hnerrinn yfirtekurGilitrutt

jæja - nú verður ekki tími til að blogga um nokkurt skeið  - 3 dagar í ferðalag - skúbbbbbbídúa

þið getið fylgst með gangi mála á meðan á http://hnerrinn.bloggar.is/  - við verðum með vefdagbók þar

smjáumst

lög vikunnar eru öll með John Mayer - live upptökur út Abbey Road stúdíó - njótið og hrjótið og fljótið og munið hvað þið eruð öll falleg! Lífið er gott.

Gravity       Belief     Vultures     og svo John Mayer Trio live á tónleikum að spila I´ve got a woman eftir Ray Charles - takið eftir suddatrommuleik Steve Jordan - þéttur eins og bííííííííííbbbbbb.
Síđa 1 af 12

Ómissandi fólk

Auglýsing

Tenglar

Gagnasafn

Teljari