Aðalvalmynd

Frekna

Könnun

Hvað finnst þér um ástina?

Klukkan

gott er að gírast og gleðin við völdGilitrutt

allt gott - allt gott - mikið að gera - æfingar á fullu - önninni að ljúka - og tíminn flýgur áfram

lítið títt - en jú ég fór á forsýningu á Konan áður í þjóðleikhúsinu - leist vel á - vel skrifað leikrit - gott kast - fannst aðalkarlleikarinn reyndar vera veikasti hlekkurinn - en kannski lagast það eftir síðustu æfingavikuna - en vel þess virði að sjá - skemmtileg leikmynd og ég var spennt allan tímann yfir hvað myndi gerast næst þar sem höfundurinn hoppar sí og æ fram og aftur í tíma með persónurnar og maður veit ekkert hvað gerist næst sem sagt - skiljiði þetta?

æfingar ganga vel - urðum frá að hverfa á fimmtudaginn vegna hláturskrampa - veit á gott - það er að segja ef að áhorfendur koma til með að hlæja jafn mikið og við erum búin að gera á æfingum.

Já og fór í skemmtilegt fertugsammælispartý hjá Ljúbu undir jökli - afmælið var reyndar ekki undir jökli, en hljómsveitin Hraun kom við sögur - þeir eru svooooo góðir og glaðir líka.

núh - ég segi ekki meir í bili

lag dagins er alls alls alls ekki jólalag - enda er bannað að spila jólalög fyrr en 1. des.
það er lagið Venus As a Boy með Björkinni góðu - svo flott vídjó og elskulega erótískur texti. Svo getiði hlustað á aðra útgáfu af sama lagi hér
en þar er Corinne Bailey Rae að syngja - fallegt líka og svona öðruvísi - hún er með fallega rödd, svona brosandi rödd einhvernveginn.

Verið mjúk og góð og semjiði ljóð

Athugasemdir

1
Guðbjörg skrifar og skrifar og skrifar:
Ég skal vera mjúk og góð,
glöð skal ég fyrir þig fremja ljóð,
ég úti á miðju gólfi stóð,
en féll um koll og það kom blóð.

Samið og frumflutt í tilefni skjálftahnerranna.
21. nóvember 2007 klukkan 01:04
2
Ninna skrifar:
Hlakka til að sjá sýninguna!
25. nóvember 2007 klukkan 16:30
3
Ninna skrifar:
Mí lovjú long tæm! Bara minna þig á það!
11. desember 2007 klukkan 13:31

Skrifa athugasemd

Ómissandi fólk

Auglýsing

Tenglar

Gagnasafn

Teljari