Aðalvalmynd

Frekna

Könnun

Hvað finnst þér um ástina?

Klukkan

LífiðGilitrutt

heldur áfram að koma mér á óvart. Ennþá brjálað að gera og sér ekki högg á vatni- fer að halda að ég þrífist á þessu stússi öllu saman. Ætli það ekki bara.

Núh þakka velfarnaðaróskir - frumsýning gekk vel og skíturinn fór ekki í viftuna eins og leikstjórinn okkar segir- en var nógu nærri til að leikhúsgestir orguðu af hlátri yfir misskilning á misskilning ofan og við erum enn að sýna......allir að drífa sig - plöggi, plöggi, plögg - sýnt á fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum í litla leikhúsinu við Sigtún - allar sýningar byrja kl. 20.30 - þið getið pantað miða hjá yfirmiðaseljunni Hunangsbýflugu í síma 4822787 eða á leikfelagselfoss@gmail.com.

núh það virðist ætla að verða mikill drífandi í árinu - nú er mín að uppgötva allt um Kína - og það er mjög mikið að uppgötva - ætli ég verði ekki bara að drífa mig þangað - allt útlit fyrir að svo verði síðar á árinu.

svo er það þessi snjór allur - hann er notalegur - þyrfti bara að ákveða hvort hann ætli að fara eða vera - hláka í dag og frost á morgun- aftur og aftur - dáldið ruglandi.

lög dagsins eru annars vegar hið ljúfa Killing the blues með Alison Krauss og Robert Plant af plötunni Raising Sand, en platan sú arna fer varla úr spilaranum á kvöldin - mjög ljúft í myrkrinu.

Hins vegar er hið frábæra sturtuuppvöskunarlag Allt fyrir ástina með Páli Óskari - ekta dillibossadiskur - auðvelt að taka til við þessa tónlist - sving sving - ding ding - og allit að finna diskóið sem býr innra með hverjum manni - það er mín trú.

Veriði nú stillt og prúð innan skekkjumarka og étið eins og þið getið - af súru slátri eða harðfiski.

Athugasemdir

1
Ninna skrifar:
Hvað eru margar sýningar eftir? Verð að komast en er alltaf að vinna... :/ ÆTLA samt að finna mér tíma til að komast...
29. janúar 2008 klukkan 03:06
2
Ágústa A skrifar:
Jeminn já held að þitt náttúrulega ástand sé í stússi. Verð að þakka aftur fyrir allison og plant, dásamleg músík. Sum lög meiraðsegja með banjó eins og ég fékk í afmælisgjöf. Býð þér á tónleika bráðum.
29. janúar 2008 klukkan 22:39
3
mammatutte skrifar:
Frábær sýning , takk fyrir okkur...Ívar Bjarki skemmti sér líka ferlega vel, þannig að þetta er fyrir allan aldur. Ég hélt að ég yrði ekki eldri þegar þú komst niður stigann !

Knús á þig Kínarúlla...þetta verður spennandi ár hjá þér ;)
30. janúar 2008 klukkan 00:48

Skrifa athugasemd

Ómissandi fólk

Auglýsing

Tenglar

Gagnasafn

Teljari