Freknur eru líka fólk
SkođanirGilitrutt
já skoðanir eru góðar og allt það, en stundum þegar ég skoða skoðanir fólks á vefleiðangrum (eða var það leiðöngrum?.....öngrum....angrum..hmmm) mínum þá læðist að mér sá grunur að fólk sé bara með skoðun til að vera með skoðun og svo ekki meir....getur það verið? Allt fullt af skoðunum og samt gerist ekkert og lítið breytist...þess vegna held ég að það sé vandasamt verk að vera stjórnmálamaður og afar vanþakklátt djobb-sama úr hvaða flokki maður kemur.Svo er náttúrulega hægt að tala út í hið óendanlega án þess að gera nokkuð er það ekki? Gerum við það ekki öll á einhverjum tímapunkti, ég held það.
Meira tuðið í mér.
En mikið asskoti var gaman að fara út með dívunum um helgina! Hvað við dýfðum okkur og hlógum mikið og átum humar og allt það...splíng splang splúng...hvað ér er heppin, ég þekki svo mikið af skemmtilegu fólki sem nennir endalaust að taka mig með sér, skil ekkert í ykkur þið þarna.
Ég er heppin skreppin.
Lag Dagsins er Monkey Gone to Heaven með Pixies - kallar á mikið flashback og svo bassinn. dúmmdúmmdúmm dojng dojng dojngdojng dúmmdúmmdúmm og öskra svo hátt og snjallt: then God is seven. Ég trúi því ekki ennþá að ég hafi misst af tónleikunum þeirra hérna, en reyndar hefði ég þurft að stökkva úr fallhlíf yfir Hafnarfirði ef ég hefði átt að ná því vegna þess að ég var að fljúga heim frá útlöndum þennan dag.
Áskorun jáGilitrutt
Sá að Stefanía Uberbra var að skora á mig að blogga - verð að gera það fyrir hana - nema að hún hafi verið að tala við mitt alteregó - sem er Hansína Wunderbar, stórfrægur þýskur sálfræðingur sem gefur sín ráð hvort sem manni líka eður ei.Nóg um það - hvað er að frétta - héðan af Suðurslóðum er allt gott - andað léttar eftir að sýningar hófust, get kæruleysast aðeins og svonnnna.
Hef skoðun á lagavali í söngvakeppni RÚV - úps segi ég bara - eina lagið sem ég man eftir fyrstu tvær undankeppnirnar er með Eiríki Hauks- ó vei ó vei - veit ekki á gott eða hvað? Maður verður samt að vera bjartsýnn er það ekki? Ég vill ekkert að hann fari með lag út - hann á að vera í samnorrænu spjallþáttunum fyrir aðalkeppnina.
Nú ég hef líka skoðun á miðbæ Sealfallsshire - en tillögur að nýjum miðbæ hafa litið dagsins ljós - felli mig ekki sérstaklega við neina þeirra - en margar góðar hugmyndir inn á milli og ef ég mætti velja, þá myndi ég pikka það besta úr þeim öllum - en það er víst ekki hægt. Leikhúsið heldur velli á öllum tillögunum og er það gott.
Núh - svo hef ég líka skoðun á fyrsta x-faktor þættinum - er stolt af konunni með gullbarkann og árangri hennar fólks - en vá ég hef aldrei séð annan eins pí..slag í beinni útsendingu á ævinni. Hélt ég myndi pissa í mig þegar diskókóngurinn sagði að pönkdrottningin væri með silíkon í vörunum og allt það.
En ekki meir núna.
Lag dagsins er The Man With the Child in His Eyes með Kate Bush - robboðslega fallegt lag og hún Kata litla er með ógleymanlega rödd.
JibbbbbbíííííííGilitrutt
hvað það var gaman á föstudaginn, allt gekk vel og áhorfendur virtust kunna að meta leikhoppið í okkur- ég var bæði að springa úr stolti og hamingju - Kampavín! Spennufallið var mikið og eftirpartý frekar rólegt - en það var mjög fínt - nú er bara að vona að við náum áhorfendum inn í hús til okkar.Það var ekki lítið góð tilfinning að vakna daginn eftir og þurfa ekki að gera neitt merkilegt - bara liggja marflöt á náttbrókinni og þurfa ekki einu sinni að hugsa.
En ég er farin út að mynda framsóknarmenn - þarf að undirbúa mig andlega undir það fyrst.
Lag dagsins er Bolli buuuu í flutningi Eyva og Stebba - rjóðir í kinnum af áreynslu og rokka feitt.
Hnerrinn jáGilitrutt
hefur tekið yfir líf mitt og verður gott að ganga frá honum og sýna ekki á morgun heldur hinn. Dúddirúddi hvað það verður gaman og gott að vakna morguninn eftir og vita að það er ekki æfing um kvöldið. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt tímabil.
En það verður líka gott að fá kvöldin aftur til annara nota - til dæmis að fleygja sér í sófann og glápa á kassann (úps - gleymdi, er búin að henda sófanum) leggst á á pullu bara, gott að gera ekki neitt merkilegt stundum. Og það verður frábært að byrja aftur í jóga.
En núna þarf ég að fara að Hnerrast.
Lag dagsins er Good Times Bad Times með Led OfurZeppelin - fyrsta uppáhaldslagið mitt af mörgum, byrjaði að hlusta á þá þegar ég var 18 ára og hef ekki getað hætt. Þessu lagi fylgja oft höfuðhnykkir og alls konar skrykkir.
Ţar kom ađ ţvíGilitrutt
að ykkar einlæg lagðist í bælið með látum - þvílíkt og annað eins ógeð sem fyllti vit mín og höfuð - réði ekkert við þetta og fékk engu við ráðið - var rekin heim úr vinnu og steinlagðist í ból.Hnerraði þessi ósköp - sem gæti verið tákn - fyrir þá sem kannast við leikhúsbrölt mitt - þeir vita hvað ég meina.Tilkynni hér með að flensukvóta ársins sé hér með fullnægt hjá mér - 7-9-13
Er öll að koma til - en er heldur rómlág þessa dagana - dimmrödduð svo að Karlakórinn er búinn að bjóða mér stöðu sem 2.bassi. Væri samt gaman að syngja einhvern tíma með karlakór - fara í smóking og þrusa Brennið þið vitar- helst á Þingvöllum- já það væri kikk.
Svo vildi ég bara segja Da Da Da - eta sto - dobre djen og Leikum núna! Allir að mæta í leikhúsið.
Lag dagsins er The One með Trabant - remixið er flott - spilað mjög hátt og dillað rosalega og endað í splitti (það væri flottast, en líkamlega ómögulegt fyrir mig - prik fyrir að reyna) - ekki hringja í mig þó að ykkur takist þetta ekki. Ekkert mál að ljúga sig í splitt.
StađsetningGilitrutt
Merkilega vildi svo til að ég eyddi mínum fyrstu áramótum fjarri heimabyggð í fyrsta sinn. Var þeim eytt í borg óttans með konunni með Gullbarkann, Hunangsbýflugunni, Mrs. Bó og einni annari barkahreinni konu.Var reiddur fram lúffengur lambaskanki með indverksu lagi og grísku hreim - gúmmelaði. Og ég verð að viðurkenna að það var ekkert sérstaklega leiðinlegt - uss bara já. Takk fyrir það mínar kæru kæru.
Nú fer allt rútínustúss á flug og jólatréð í kurlarann - merkilegt að vita til þess að jólatréð manns endi sem göngustígur einhversstaðar.
Á von á því að næstu tvær vikur verði eitt heljarinnar dúdderrúdderrei - með leikæfingum og nýrri önn og og og allt - en það verður bara gaman.
Svo vil ég bæta því við að mér finnst mjög mikilvægt að kyssa jólasveinana bless - og hef hugsað mér að gera það á laugardaginn - enda eru jólasveinarnir í Ingólfsfjalli einstakir - mjög hrekkjóttir og uppátækjasamir- ég held ég eigi eftir að sakna þeirra.
Lag dagsins: Lilac Wine í flutningi Jeff Buckley - er líka flott með Nínu Simone
Bara af því þau eru bæði með svo flottar raddir.
Áriđ og háriđGilitrutt
Uss bara hvað tíminn líður hratt á gervihnattaöld og svo framvegis. Hér sit ég á nýjum náttbuxum og lít um öxl (það eru bækur í glugganum hægra megin - og litlir búddakallar vinstra megin og myndin á veggnum fyrir aftan mig er skökk)
Margt gerðist nú markvert á árinu góða 2006 og verður hér stiklað á stóru og reynt að rýna í:
Börnin mín stækkuðu og döfnuðu og nota nú sama skónúmer og ég og geta gert ótal hluti sem eru ofar mínum skilningi - spái því að þeir vaxi mér yfir höfuð á nýju ári og þarf víst ekki mikið til.
ég kynntist gríðarlega mikið af skemmtilegu fólki árinu og þurfti að læra nöfnin á fullt af nýjum sveitarstjórum.
komst að því að stjórnmál eru oftast mjög áhugaverð og er ég orðin frekar flínk að lesa fundargerðir.
það fæddist fullt af fallegum heilbrigðum börnum inn í fjölskyldu og vinahópinn - mér telst svo til að gamli vinahópurinn sé kominn langt með tvöfalt fótboltalið.
Svarfaðadalurinn hélt áfram að vera uppspretta leikgleði og vísidóms.
Ég lærði að taka betri myndir - og fékk að taka loftmyndir.
Ég ferðaðist til Londres og Þýskalands- sá Weimar- Buchenwald-drakk snafs með gömlum þýskum ellilífeyrisþegum-fór á Ronnie Scotts og Comedy Store og labbaði á Primrose Hill í 37 stiga hita. Svo svaf ég í tjaldi á Hellisandi og á Dalvík og borðaði miðnæturhumar hjá Norðanstúlkunni.
Fór á Sykurmolatónleika- hélt ég myndi ekki lifa að sjá það og sá Joönnu Newsome spila í Fríkirkjunni - hún er álfur. Sá líka ástralska ástarpunginn Nick Cave -gítarleikarinn hans er engispretta og ég fékk gæsahúð.
Skrifaði smá og fór á Margt Smátt.
Var stolt af leikfélaginu og félögum mínum aftur og aftur og aftur - sér ekki fyrir endann á því
Tom Waits gaf út Munaðarleysingja (hneigjum okkur fyrir því) og ég stofnaði KLÍNK - hið alíslenska Tom Waitsfélag með vinum.
Las fullt og heyrði nýja tónlist - fæ aldrei nóg.
Ég hló rosalega mikið á árinu, grét minna, vann of mikið en leið samt mjög vel, brosti meira og var umvafin vinum og fjölskyldu. Ég er heppin og rík og hlakka til að sjá hvað nýtt ár ber með sér.
Þið þarna öll - fjöll - muniði hvað það er búið að vera gaman? og manstu.......iss hvað það er gott að vera til.
Lag Dagsins er klassískt ELO lag - I'm Alive sungið með frjálsri aðferð, aukastig fyrir bömp og falsettu.
Bros og birtaGilitrutt
Til ykkar allra - ljúfust og stúfust - þekkt og óþekkt og óþekk- nær og fjær - þið eruð öll falleg.
Jólin koma alltaf sama hvað maður heldur.
Já, nú sit ég hér á skúringapeysunni og er alveg að detta í síðasta jólagírinn, ganga frá lausum endum og allt að smella. Komin í fjögurra daga frí og það munar um minna.
Lokahnykkurinn er svo þessi:
Skreyta jólatréð - síðasta verk á Þorláksmessukvöld og svo kemur Kertasníkir.
Fá hangikjötslykt í húsið - skylda að sjóða á aðfangadag og láta kólna úti á tröppum eins og amma gerði. Og búa til rauðkálið.
Skipta á rúmunum á aðfangadagsmorgun - það er svo gott að sofna á Jólanótt með nýviðraða sæng og kodda.
Bíða spennt og fylgjast með fiðrildum í maganum á mér og prinsunum mínum.
Vera svo umvafin sínum nánustu allt kvöldið og enda á því að lesa jólakortin á mínum ástkæru náttbuxum.
Jólin eru hreint og klárt undur í hvert sinn.
Lag dagsins er Hátíð fer að höndum ein sem er íslenskt þjóðlag og þessi fallegi texti er að hluta til eftir Jóhannes úr Kötlum og hluta til íslensk þjóðvísa.
Hátíð fer að höndum ein
hana vér allir prýðum
lýðurinn tendri ljósin hrein
líður að tíðum
líður að helgum tíðum
Gerast mun nú brautin bein
bjart í geiminum víðum
ljómandi kerti á lágri grein
líður að tíðum
líður að helgum tíðum
Sæl mun dilla silkigrein
syninum undurfríðum
leið ei verður þá lundin nein
líður að tíðum
líður að helgum tíðum
Stjarnan á sinn augastein
anda mun geislum blíðum
loga fyrir hinn litla svein
líður að tíðum
líður að helgum tíðum
Heimsins þagna harmakvein
hörðum er linnir stríðum
læknast og þá hin leyndu mein
líður að tíðum
líður að helgum tíðum.
Gleðileg jól elskurnar mínar og ég vona að þið finnið fyrir jólafrið og yl í hjörtunum ykkar.
Allt fram streymirGilitrutt
endalaust og áin sem ég ólst upp við er með uppsteyt, ég held hún haldi að það sé komið vor, nema Grýla sé í svona miklum hreingerningarham - já ætli hún sé ekki að taka til - gerir það á hundrað ára fresti.
Við leikhúsliðar þorðum ekki annað en að rýma kjallarann hjá okkur út af þessu jólastressi í ánni, enda er húsið okkar alveg við árbakkann og hefur flætt í kjellerenn áður.
Ég er frekar drúsluleg - asnalegt að vera veikur- en það er samt hægt að borða humar þegar maður er veikur og flissa líka að rumpum og nefklemmdum söngútfærslum af jólalögum með tilheyrandi tilþrifum.
Setning dagins er úr ranni Tómasi Bíður (hneigjum okkur fyrir honum), en hann sagði einu sinni í viðtali: I'd rather have a bottle in front of me than a frontal lobotomy.
Lag dagsins er Grýla með Hrekkjusvínunum af plötunni Lög Unga Fólksins
Læt textann fylgja með - syngja svo hátt og hressilega
Nú er hún Grýla dauð.
Hún gafst upp á að róla sér á róluvöllunum.
Það vildi enginn gefa henni brauð
og hún fékk engan frið fyrir öskuköllunum.
Sem tæma allar öskutunnur
svo tómur er Grýlumunnur
sem tæma allar öskutunnur
svo Grýla fær ekki neitt.
Á endanum hún tók til bragðs að róla endalaust
hærra og meira en nokkur annar má.
Og þegar hún var komin ofsa ofsa hraða á
þá sleppti hún taki og flaug um loftin blá.
Grýla hún lenti upp í Esju
og núna er hún bara til í barnabókunum.
Líka í leiðurum blaða
til að hræða fólk frá hærri og meiri kaupkröfum.
Grýla gamla er steindauð
og Leppalúði líka.
Krakkar og öskukallar
ráku þau á braut.
Á endanum hún tók til bragðs að róla endalaust
hærra og meira en nokkur annar má.
Og þegar hún var komin ofsa ofsa hraða á
þá sleppti hún taki og flaug um loftin blá.
Ţađ er nú svoGilitrutt
Kætin farin að bæra á sér heldur betur hér á heimilinu og sveinarnir mínir orðnir heldur spenntir. Engin kartafla komið enn, en mjög fyndið að sjá risastór stígvélin út í glugga - kæmist sennilega heill poki af mandarínum í þau.Gott að það er að koma helgi, þá getur maður væntanlega hreinsað upp þau verk sem trassast hefur verið við á bænum.
En best verður að sooooooooooooofa og svo kannski kíkt út með myndavélina, já og búa til karamellur og piparkökur og skrifa á jólakort og og og og vei vei , ryksuga og bóna......nú þyrfti ég að panta bleiku konuna eða gullkonuna.
Lag Dagsins Ást við fyrstu sýn eftir Magnús Þór Sigmundsson í flutningi Páls Óskars og Monicu hörpuleikara.
Birtingarmyndir ástarinnar eru svo margvíslegar og koma mér alltaf svo skemmtilega á óvart, þetta lag er líka bara svo fallegt.
