Freknur eru líka fólk
LjósiđGilitrutt
það er engin furða að menn á norðurhjara veraldar hafi í gegnum aldirnar kosið að halda hátíð ljóss og friðar á þessum árstíma, þegar myrkrið er í algleymingi.
Það er gott að kveikja ljós í myrkrinu og leyfa því að ylja sér, en kannski enn mikilvægara að næra ljósið innra með sér og reyna að dreifa því til annara sem eru búnir að týna birtunni sinni.
Ljósið er hverfult eins og annað í þessu lífi. Kveikjum birtu og gefum yl, maður veit aldrei ....... það þarf oft ekki mikið til.
Lag dagsins er eitt besta lag í heimi finnst mér, Into My Arms með Nick Cave.
Umvefjum ....það er hollt.
I don't believe in an interventionist God
But I know, darling, that you do
But if I did I would kneel down and ask Him
Not to intervene when it came to you
Not to touch a hair on your head
To leave you as you are
And if He felt He had to direct you
Then direct you into my arms
Into my arms, O Lord
Into my arms, O Lord
Into my arms, O Lord
Into my arms
And I don't believe in the existence of angels
But looking at you I wonder if that's true
But if I did I would summon them together
And ask them to watch over you
To each burn a candle for you
To make bright and clear your path
And to walk, like Christ, in grace and love
And guide you into my arms
Into my arms, O Lord
Into my arms, O Lord
Into my arms, O Lord
Into my arms
And I believe in Love
And I know that you do too
And I believe in some kind of path
That we can walk down, me and you
So keep your candlew burning
And make her journey bright and pure
That she will keep returning
Always and evermore
Into my arms, O Lord
Into my arms, O Lord
Into my arms, O Lord
Into my arms
Jól smjólGilitrutt
já þau nálgast ótt, blessuð jólin og konan með gullbarkann hjálpaði mér heldur betur að krækja mér í jólastuð í gær á tónleikum......Damn that girl can sing, það var trutlað jólasving í gangi og jólablús og jólavæmið og allur pakkinn, nákvæmlega eins og það á að vera.Svo er það regla hjá mér að versla einn jóladisk fyrir hver jól, hef verið að sanka að mér öllum gömlu jólaplötunum sem búið er að endurútgefa og yfirfæri gömlu jólalögin á börnin mín - uss bara - þeir dilla sér með við Sveinn minn jóla með Ladda og svinga við Ellu Fitz í Jingle Bells og dúddirúddi rúúúú....hvað haldiði að hafi bæst við í safnið núna, ekki nema Verkstæði Jólasveinanna, algjör klassík, lá áðan uppí rúmi með piltunum og horfði á jólaseríu og þá (af því þeir eru auðvitað fallegastir) og hlustaði,fékk hálfgerðan minningarhroll-gleðilegan sko - því ég hlustaði á þessa plötu í spað þegar ég var kríli með fléttur og sömu freknur og í dag, vínylplatan hjá mömmu og pabba er eins og rispað laufabrauð.
Man hað ég var hrædd þegar þau voru að labba í myrkrinu að leita að verkstæðinu og svo heyrist bank og hvín í trjánum og svo eru þeir klaufalega fyndnir með skrækur raddirnar sínar, gamli jólasveinn, miðju jólasveinn og litli jólasveinn.
Semsagt mæli með Verkstæðinu - stendur fyllilega fyrir sínu.
Lag dagsins: Á jólunum er gleði og gaman með Kvartett Kristjönu Stef - fúmm fúmm fúmm.
Þar til næst - sendi ykkur gleðijólahroll og spáiði í þessum endalausu norðurljósum og stjörnum - horfið til himins og njótið.
Ég er svo aldeilisGilitrutt
hissa með þessa helgi - allt orðið gesprungt í minni heimasveit og nú vita menn ekki hvort þeir eiga að líta til hægri eða vinstri - eða í allar áttir - tímabundið anarkí í Sealfallsshire. Verður fróðlegt að fylgjast með þeirri framvindu og allt það.
Annars er almenn gleði hér á bæ, jólin komin í eldhúsið - skiptir mjög miklu máli og Gilitrutt sér fram á afar svo ánægjulegan desembermánuð - hver veit nema hér verði búnar til karamellur og piparkökur og tánum stungið reglulega upp í loft, milli þess sem að vinir verða heimsóttir - já- held bara að tíminn vinni með mér þessa dagana.
Hrós helgarinnar fá Bakkabræður og hinn yfirdrifni sveitadrengur fyrir að kitla hláturtærnar mínar.
Lag Dagsins er I Feel Good með James Brown .......öskra soldið eins og ljón - og svo digga og svinga og meira digga og svo bling bling - finnast maður vera flottasti dansarinn....fyrir framan baðherbergisspegilinn - enda á einu góðu öskri - horfa svo djúpt í augun á sjálfum þér og segja með sannfæringu: How you doin'?
Þykja dáldið vænt um ljónið í speglinum - svíng
Er hætt núna - best að kíkja á ljónið.
HeilinnGilitrutt
á mér er svoleiðis á fullu þessa dagana, hux hux hux, eins ég veit ekki hvað. Verst er hvernig ekkert tollir í honum - þannig að ég er að huxa um að biðja um aukaminniskubb í jólagjöf, þá verð ég næstum eins og Steve Martin í hinni fornfrægu og bráðskemmtilegu bíómynd - The Man With Two Brains- geng um með aukaheila í svona krukku.Væri gott ef maður gæti leigt svoleiðis út á álagstímum, verður örugglega hægt árið 2127.
og svo framvegis.
Lög Dagsins og ná til gærdagsins eru:
Me and Mrs. Jones með Billy Paul fyrir mömmu og pabba af því að þau áttu 40 ára brúðkaupsafmæli í gær.
og Talað við Gluggann með Bubba - af því Glugginn átti 3 ára afmæli í gær.
Og hvađ svo?Gilitrutt
Ég bara spyr....ekki leiðinlegt að vera til, hef verið umkringd góðu fólki alla helgina, þar á meðal Sigurlaug frænka og Ungfrú Töfra, Ritfróður Dan og svo kíkti Dítríus í heimsókn.Og svo var hlustað á nýja diskinn með Tom Waits sem er aldrei leiðinlegt og hið alíslenska Tom Waitsfélag stofnað. Og hlegið yfir prumpi.
Alveg magnað hvað það er hægt að hlæja að líkamshljóðum. Já ég viðurkenni það - ég er frummaður og finnst prump fyndið og ég dilla mér líka við FM957 og og og og 75
Þvílíkur léttir að vera komin út úr skápnum með þetta!
Lag dagsins er ekta dillasérlag með Justin Timberlake (bara í vatnaskógi) og heitir Damn Girl.
Ja
baraGilitrutt
Lag dagsins: Bold as Love (gamla Hendrix lagið) í flutningi John Mayer, Pino Palladino á bassa og Steve Jordan á trommur....úff flott og drulluþétt- langar að dansa og úa og ía og trillirííí - litríkt og fullt af lífiHér er svo textinn svo þið getið gesungt með og spilað luftgítarsóló:
Queen jealousy, envy waits behind him
Her fiery green gown sneers at the grassy ground
Blue are the life-giving waters taken for granted,
They quietly understand
Once happy turquoise armies lay opposite ready,
But wonder why the fight is on
But theyre all bold as love, yes, theyre all bold as love
Yeah, theyre all bold as love
Just ask the axis
My red is so confident that he flashes trophies of war and
Ribbons of euphoria
Orange is young, full of daring,
But very unsteady for the first go round
My yellow in this case is not so mellow
In fact Im trying to say its frigthened like me
And all these emotions of mine keep holding me from, eh,
Giving my life to a rainbow like you
But, Im eh , yeah, Im bold as love
Yeah, yeah
Well Im bold, bold as love (hear me talking, girl)
Im bold as love
Just ask the axis (he knows everything)
Yeah, yeah, yeah
ó jeyjum út helgina - blíða og friður og regnbogar og rauðir nebbar
Já gleđi gleđiGilitrutt
gleði og meiri gleði framundan - leikhúspartý og leikhúsvinna og svo og svo var Rigningarhundurinn Tom Waits að gefa út nýja plötu og ég fæ vonandi að hlusta á hana í góðum félagsskap um helgina.
Ég vænti þess einnig að sama dag verði stofnaður hinn margræddi klúbbur sem á aðeins að snúast um karlinn Waits - ekki leiðinlegt það.
Ég man vel eftir því þegar ég hlustaði á Waits í fyrsta skipti - vinur minn kom í heimsókn til mín þar sem ég bjó á Brekkustígnum (JÁ - sveitastúlkan Gilitrutt hefur prufað að búa í borg óttans) - hann var með í farteskinu plötuna Frank's Wild Years - þannig að fyrir þá sem þekkja karlinn gera sér grein fyrir að ég byrjaði bratt - fyrsta tilfinningin var að ég væri að hlusta á einhvern sem bruddi rakvélablöð í morgunmat og skolaði þeim niður með tvöföldum viskí og sá hinn sami væri að reyna að syngja eitthvað og undir væri spilað á ruslatunnulok.
En síðan eru liðin mörg ár og er Waitsarinn einn af mínum uppáhaldstónlistarmönnum.
Lýkur hér pistli dagsins.
Lag dagsins: Innocent when you dream - með téðum Tómasi bíður
passið ykkur í myrkrinu og dreymi ykkur saklausa drauma
Allt sem mann langar ađ geraGilitrutt
úff - það er svo margt. Til dæmis núna um helgina gæti ég verið á mörgum stöðum og örugglega skemmt mér konunglega á þeim öllum. En það er ekki hægt að gera allt og sumt verður maður að gera og sumt langar mann ekki að gera, en gerir og svo þarf maður kannski líka að hvíla sig þess á milli.Þannig að ég kemst því miður ekki - elsku besta Ungfrú Töfra mín og Sigurlaug frænka - á tónleika með Rip, Rap og Garfunkel - en það hefði verið rúllandi mikið gaman.
Og svo framvegis og svo framvegis.
Hins vegar velti ég einu fyrir mér: af hverju eru bara 24 klukkutímar í sólarhringnum - af hverju eru þeir ekki 33? eða 77 til dæmis, hver réði þessu?
Svo hefur mig alltaf langað til að vita annað: af hverju verður nefið á mér svona rautt þegar mér er kalt?
Svör óskast
Og svo framvegis
LćgđarhugsanirGilitrutt
undarlegt hvernig veður getur haft áhrif á fólk, held að þetta hafi verið þyngsti dagur ársins í vinnunum mínum - allir hálf geispandi og slepjulegir, ég er alveg handviss um að þessi djúpa lægð sem er að fara yfir landið hafi þessi áhrif á fólk.
ég er hins vegar eins og nýsleginn túskildingur - enda fékk ég prufur af kremi - GULLKREMI - þannig að ég breytist ekki í bleika konu heldur gullkonu - það hljómar vel - gullkonan gerir nefnilega það sem henni sýnist - ekkert hægt að bögga hana - hún er gullslegin- nema náttúrulega þegar mesti glansinn fer af henni og hún mattast - þá þarf að slípa hana upp - nei annars oj bara - vill ekki láta slípa mig.
Skemmtileg helgi framundan - ekkert nema gleði í góðra vina hópi - rauðvínsslegið spilakvöld og kvöldmatur hjá konunni með gullhjartað - inn á milli eru það leikæfingar með Balla.
það er nú tað.....
aftur góða helgi og ekki láta lægðirnar trufla ykkur - stjörnurnar eru þarna uppi þó þið sjáið þær ekki og englarnir líka.
Og svona fyrir svefninnGilitrutt
allir að skrifa undir http://www.act-against-homophobia.underskrifter.dk/index.php ´sýnum frændum vorum í Færeyjum að við meinum það sem við segjum - ekkert bull.
Þarf ekkert að ræða það frekar.
