Freknur eru líka fólk
Kvikmyndir eru bestar líka
Short Cuts - snilld og aftur snilld, að mínu mati besta mynd Robert's Altman, byggt á sögum eftir Raymond Carver. Drulluflott cast og skemmtilegt hvernig sögupersónur í hverri sögu fyrir sig fléttast saman. Svo skemmir ekki fyrir að Tom Waits, bestastur og flottastur leikur í henni.
Godfather II - ein af mínum uppáhaldsmyndum, Robert De Niro er svo flottur og Al Pacino skemmir ekki fyrir. Sögurnar tvær af þeim feðgum frábærlega vel fléttað saman.
Sophie's Choice - Fullkominn leikur hjá Meryl Streep og Kevin Kline - fantagóð saga. Get horft á hana aftur og aftur. 10 snýtuklúta mynd um efni sem engan lætur ósnortinn.
Cabaret - Sá þessa fyrst þegar ég var 10 ára og svo aftur og aftur og aftur. Tónlistin frábær og Liza engum lík. VIð pössuðum alltaf videóið fyrir vin pabba og mömmu þegar hann fór til útlanda- (ath. þetta var þegar videó vógu 20 kíló og voru ekki í hverri stofu) - tókum upp fyrir hann og í staðinn fékk maður að velja spólur úr safninu hans. Himnaríki fyrir bíófífl eins og mig.
Elizabeth - frábær mynd um Elísabetu fyrstu bretadrottningu. Kate Blanchett mögnuð og umhverfið í myndinni spennandi og flott.
Nikita- Besta mynd Luc Besson og hefur allt, góða sögu, spennandi persónur og flotta myndatöku. Tónlistin er æðisleg.
Betty Blue- ein rosalegasta ástarsaga sem ég hef séð- Beatrice Dalle og Jean-Hugues Anglade eru bæði frábær og tónlistin er gimsteinn og er eftir Gabriel Yared.
Apocalypse Now - suddaleg útfærsla á sögu sem kemur mér heilmikið við - Heart of Darkness- púlaði þessi ósköp við að skrifa BA. ritgerðina mína um þessa bók og Nietzsce. Myndin nær andrúmslofti sögunnar vel og yfirfærslan á Víetnam er mögnuð.
Deconstruction Harry- ein af bestu seinni tíma myndum frá Woody Allen - hugmyndafræðin um sögu í sögunni skemmtilega útfærð og Judy Davis er algerlega frábær í þessari mynd.
A Fish Called Wanda- Ég datt í gólfið á bíóinu þegar ég sá hana fyrst, ég hló svo mikið. Get alltaf hlegið að þessari mynd og hef meira að segja þröngvað henni upp á nemendur mína. Notað hana í verkefni. Kevin Kline er svo fyndinn að það er eiginlega ekki hægt.
Reservoir Dogs - Besta mynd Quintins Tarrantinos að mínu mati og hefur hann gert þær nokkrar góðar. Frásagnarmátinn skemmtilegur- persónurnar ógleymanlegar og andrúmsloftið blóðugt og óvænt.
Usual Suspects- frábært handrit og Kevin Spacey fer á kostum, get horft á þessa aftur og aftur.
My Fair Lady- uppáhaldssöngvamyndin mín, Rex Harrison sem stífi prófessorinn og Audrey fallega búa til brilljantín par.
Pride and Prejudice- BBC serían með Colin Firth- frábærlega unnið upp úr bókinni og ekki verra að horfa á hinn ofurhrokafulla Colin vandræðast og dýfa sér í tjörnina.
Falling in Love- með Meryl Streep og Robert De Niro - ein fallegasta ástarsaga sem ég hef séð - er bara um venjulegt fólk og ástina og samskipti og þau leika svo drulluvel.
Fifth Element- líka eftir Luc Besson, ein skemmtilegasta framtíðarmynd sem ég hef séð og Bruce Willis fer á kostum.
